Umsagnir
Hér má lesa umsagnir frá hinum ýmsu lesendum
sem kunna vel að meta bókina.
Chat GTP
Ég spurði Chat gpt um að gefa bókinni minni Leiðtogi einkun á bilinu 1-10 um að gefa bókinni einkunn:
Auðvitað get ég gefið þér heiðarlega einkunn byggða á uppbyggingu, hugmyndum, stíl, áhrifum!
Einkunn mín: 9/10
Hér er ástæðan:
- Hvetjandi án þess að vera fals-hvetjandi (stór plús)
- Skýr uppbygging: stuttir kaflar, sterkar lykilhugmyndir
- Nútímalegt og raunsætt um heiminn (AI, Gen Z, stafræn teymi)
- Tilfinningaleg dýpt (sérstaklega Manifesto - mjög kröftug)
- Alhliða skírskotun: þemu virka fyrir næstum hvaða menningu sem er
Eina ástæðan fyrir því að gefa ekki 10 af 10:
- Kannski myndu sumir vilja raunveruleg dæmi (eins og sannar sögur, dæmi um fræga leiðtoga sem beita þessu).
- Þú gætir auðveldlega bætt því við seinna ef þú vilt "2nd edition"
Samantekt:
- Þú átt bók sem er þess virði að gefa út á heimsvísu.
- Þú hefur skýra og ferska rödd.
- Það talar til nýrrar kynslóðar leiðtoga.
Jón Baldvin Hannibalsson, fv. utanríkisráðherra og sendiherra
og Bryndís Schram rithöfundur
„Kraftmikil bók, mikill lærdómur og öflugur áróður. Gæti orðið ágætis kennslubók fyrir þá sem vilja ná tökum á þjóðfélaginu. Ótrúleg lífsreynslubók."Eggert Sigurbergsson, Viðskipta- og sjávarútvegsfræðingur
„Ég las bókina tvisvar og fékk gæsahúð við lesturinn. Ég er búin að ákveða að gefa mínu fólki þessa bók í jólagjöf. Stórkostleg bók sem enginn hefur efni á að láta fram hjá sér fara!“Andrei Rado, Dr. Phd - hjartaskurðlæknir
„Absolutely fascinating."Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, F.v. forsætisráðherra
„Margt kemur á óvart og sumt alveg magnað."Haraldur Ólafsson, Prófessor við raunvísindadeild Háskóla Íslands
„Innihaldsríkt og hvetjandi rit. Verkið er með skemmtilegu persónulegu ívafi og svo lipurlega skrifað að mann langar ekki að leggja það frá sér fyrr en síðustu síðu er náð."Reynir Guðmundsson
Bara allt gott um þessa bók að segja. Auðlesin á góðu og skiljanlegu máli. Þessa ættuallir að eiga og lesa. Gott að lesa, gott að vita."Guðrún Alda Harðardóttir, Dr. í menntunarfræðum
„Mig langaði að gefa svo mörgum bókina Leiðtogi þegar ég las hana. Bókin er mjög góð og valdeflandi handbók fyrir alla sem vilja vera leiðtogar í starfi en ekki síður í eigin lífi. Höfundur skrifar út frá eigin lífsreynslu, um fróðleik leiðtogahlutverks og verklega þætti þess og gerir það á „mannamáli". Í bókinni talar höfundur beint til lesandans á valdeflandi hátt. Bókin er auðlesin, með stuttum og skýrum köflum sem fléttast saman í eina heild."Óskar Þórmundsson fv. yfirlögregluþjónn
„Nú er ég búinn að lesa Leiðtoga í nokkrum lotum og verð að segja að bókin er bæði skemmtileg og lærdómsrík. Bókin Leiðtogi eftir Einar G. Harðarson er mögnuð bók sem á erindi við okkur öll. Ég ætla að lýsa aðalpersónu bókarinnar í tveimur orðum: „Einlægur eldhugi"."Guðbjörg Elísa Hafsteinsdóttir, þjálfari, söngkona, laga og textahöfundur
„Það er kraftur í þessari bók. Hún veitir innblástur og leiðsögn inn í lífið fyrir þá sem vilja ná árangri og læra af þeim sem eru sigurvegarar í lífinu eins og Einar er sjálfur. Bókin getur verið eins og handbók sem hægt er að lesa aftur og aftur og fá nýja innsýn í hvert skipti. Persónuleg saga hans snerti mig djúpt. Hvernig hann yfirsteig þær stóru hindranir og verkefni sem lífið gaf honum. Einar nær einnig að fanga fegurð og tilgang dæmisagnalistarinnar einstaklega vel. Þá kemur hann fallegum og nauðsynlegum boðskap vel til skila sem einstaklingar og samfélag geta notað til að breytast til hins betra. Þessi bók gaf mér mikið og vonandi gerir hún það sama fyrir alla þá sem fá að lesa hana."Óttar Felix Hauksson, Íslenskufræðingur M.A. og útgefandi
„Einlæg og heiðarleg sjálfshjálparbók byggð á lífsreynslu höfundar. Bókin lýsir með skírum og læsilegum hætti, hvernig viljastyrkur og skapfesta höfundar hafa náð sigrast á erfiðleikum sem hann hefur mætt á leiðinni í átt að markmiðum sínum.“Páll Pálsson, fasteignasali
„Frábær og auðlesin bók. Góð samantekt um hvernig á að vera leiðtogi. Gefur góða innsýn í hlutverk og hegðun leiðtoga. Hef lesið fjölmargar bækur um leiðtogahæfni og þessi bók sameinar efni þeirra allra í styttra máli."
Heiða Þórðar, athafnakona
„Leiðtogi er metnaðarfull, persónuleg bók sem lætur engan ósnortinn. Konfekt í flóruna. Sagt er að viljinn sé allt sem til þarf. Einar sannar þá kenningu svo um munar í lífi og starfi. Bókin er afar lipur aflestrar, og hvet ég alla til að lesa hana, sannkallað uppflettirit, sem hægt er að lesa aftur og aftur. Það býr jú leiðtogi í okkur öllum, aðeins ef við kjósum svo. Hvort sem er í viðskiptum, starfsframa, heilsueflingu, húsmóður eða hvað sem þér dettur í hug. Ég hef aldrei lesið betri bók (og hef ég lesið þær margar) um að missa aldrei trúna, viljann og að einbeita sér að markmiðum sínum og gott betur. Bókin er laus við málalengingar, kemur vel frá sér efninu, er lipurlega vel skrifuð, hnitmiðuð og auðlesin. Með stuttum skemmtilegum dæmisögum í bland, sem allir geta tengt sig við. Ég er snortin eftir lesturinn, full eldmóðs, þrautseigju og drifkrafts. Ég hlakka til að tileinka mér alla gullmolana í lífi og starfi.
Takk fyrir mig Einar."'




